Nefndir
Formennska í norrænum nefndum
Íslendingar samhæfa samstarf norrænu ríkisstjórnanna og hafa frumkvæði að ýmsum aðgerðum og ráðstöfunum á meðan þeir gegna formennsku í Norrænu ráðherranefndinni. Þeir stjórna fundum í öllum samstarfsnefndum, hvort heldur er í fagráðherranefndum eða embættismannanefndum. Einnig stjórna þeir samráðsfundum ríkisstjórnanna um Evrópumál og önnur alþjóðamál á öllum stjórnstigum.
Snjólaug Ólafsdóttir skrifstofustjóri Norðurlandaskrifstofu stýrir starfi Norrænu samstarfsnefndarinnar, en embættismenn í ráðuneytunum stjórna störfum í hinum ýmsu embættismannanefndum fagsviða. Þeim til aðstoðar eru ráðgjafar á skrifstofu Norrænu ráðherranefndarinnar í Kaupmannahöfn. Norræna samstarfsnefndin (NSK) fundar reglulega og tekur meðal annars ákvarðanir um fjárveitingar til ýmissa verkefna á formennskutímanum.

