Karlar í kvennastörfum

Ójöfn staða og mismunandi möguleikar karla og kvenna á vinnumarkaði er viðfangsefni tveggja daga norrænnar ráðstefnu sem haldin er á Grand hóteli 11.-12. nóvember. Fyrri daginn verður sjónum einkum beint að körlum í svokölluðum kvennastörfum og flytur þá m.a. Erik Hauglund frá norska fjölskylduráðuneytinu erindi. Hann fullyrðir að karlar í leikskólum sé ekki síður mikilvægt verkefni á norrænum vinnumarkaði en að fjölga konum í stjórnunarstöðum. Þórður Kristinsson mannfræðingur mun greina frá rannsókn sinni á körlum meðal íslenskra hjúkrunarfræðinga og Steinunn Hrafnsdóttir félagsráðgjafi segir frá sínum athugunum á körlum á kvennavinnustöðum. Þá mun þjóðfræðingurinn Marie Nordberg ræða hvort viðleitnin til að fá karla í kvennastörf sé mikilvægt framlag til jafnréttis kynja eða styrking á ákveðinni karlmennskuímynd. Loks mun Hafsteinn Karlsson skólastjóri fjalla um það hvernig sé að vera karl í kvenkennarahóp.

Seinni daginn verður horft til kynjaskiptingar á norrænum vinnumarkaði. Einn helsti sérfræðingur Norðurlanda á því sviði, Helinä Melkas, fer yfir stöðuna og veltir fyrir sér mögulegri þróun. Þá mun Lárus Blöndal deildarstjóri vinnumarkaðsdeildar Hagstofu Íslands greina breytingar á kynjaskiptingu á vinnumarkaði hérlendis og Fríða Rós Valdimarsdóttir mannfræðingur fjallar um samspil fæðingarorlofs og vinnumarkaðsstöðu.

Steen Bagöe Nielsen uppeldisfræðingur segir frá athugunum sínum á því hvað þurfi til að fá karla í kvennastörf og Kjartan Ólafsson félagsfræðingur segir frá viðhorfum íslenskra unglinga til framtíðarstarfs síns og breytinga á því sviði frá 1968 til 2003.

Ráðstefnan er haldin á vegum Norrænu ráðherranefndarinnar og Jafnréttisstofu.

Fulltrúum fjölmiðla er hér með boðið að sitja ráðstefnuna en fyrri daginn stendur hún frá kl. 13:00 til 17:00 og hinn seinni frá 9:00 til 13:00.

Frekari upplýsingar veitir Ingólfur V. Gíslason, starfsmaður Jafnréttisstofu í síma: 5510668



 



Stoðval