Ráðstefnur á formennskutímanum

  • Tækifæri í tölvuleikjum
    Ráðstefna um þróun tölvuleikja og tækifæri í markaðssetningu.
    Malm¢ 25.-26. nóvember 2004.
  • Gildi þjóðgarða og friðlýstra svæða
    Markmið er að skapa farveg fyrir samræður frjálsra félagasamtaka og stjórnvalda um umhverfisvernd. Frestast fram til 2005.

RÁÐSTEFNUM SEM LOKIÐ ER:

  • Sköpunarkraftur og tækni
    Reykjavík 18.-23. mars. Ráðstefna var haldin í samstarfi Cambridge háskóla, Ráðherranefndarinnar, Reykjavíkurborgar og Háskóla Íslands. Margir fræðimenn á sviði upplýsingatækni héldu erindi á ráðstefnunni. Fyrri hluti fór fram hjá Háskóla Íslands 18. og 19. mars - sjá dagskrá - en síðari hlutinn á Hótel Nordica, Nýlistasafni og víðar dagana 20.-22. mars - sjá dagskrá. Frétt um ráðstefnuna og viðburði henni tengdri voru birt á vef Norrænu ráðherranefndarinnar.
  • Verndun hafsins
    Alþjóðleg ráðstefna haldin í samstarfi umhverfis- og sjávarútvegsgeirans.
    Nordica Hótel Reykjavík 2.-4. júní 2004. 150 ráðstefnugestir.
    Erindi og umræður á ensku. Sjá dagskrá á heimasíðu um ráðstefnuna og fréttatilkynningu.
    Sjá frétt um niðurstöður ráðstefnunnar.
  • Norrænt vinnuverndarþing
    Reykjavík 5- 8. júní.
  • Alþjóðleg ráðstefna um rannsóknir og nýsköpun
    Á grundvelli nýrrar skýrslu Gustavs Björkstrand - Nordisk forskning och innovation - globalt ledande genom ökat samarbete - verður rætt hvernig móta megi og framfylgja árangursríkri vísinda- og tæknistefnu. Var haldin í Grand Hóteli í Reykjavík fimmtudaginn 10. júní 2004. Sjá dagskrá ráðstefnunnar. Frétt um styrk i norrænni nýsköpun birtist m.a. á vef Norrænu ráðherranefndarinnar.
  • Kvennahreyfingar-innblástur, íhlutun, irringar- Ráðstefna um norrænar kvennahreyfingar
    Í samstarfi við NIKK. Fyrir fræðimenn, embættismenn og fulltrúa kvennahreyfinga á Norðurlöndum og á grannsvæðunum. Háskóli Íslands, Reykjavík 10. - 12. júní 2004. Meira um ráðstefnuna.
    Sjá frétt um ráðstefnuna.
  • Lýðræði á öld upplýsingatækni
    Ráðstefnan er skipulögð af ráðherranefnd um upplýsingatækni og haldin í samstarfi við lýðræðisnefnd sem skipuð verður fulltrúum allra norrænu ríkisstjórnanna. Sjá dagskrá ráðstefnunnar á pdf-sniði.
    Hótel Nordica Reykjavík 26. - 27. ágúst 2004. Sjá frétt um ráðstefnuna. Allt efni ráðstefnunnar er komið á vefinn.
  • Menntun og mannauður - lifandi skólasamfélag til framtíðar
    Á þemaráðstefnu Norðurlandaráðs verður hugtakið lífsleikni í brennidepli og það tengt inn í umræðu um lýðræðið sem hugsunarhátt, færni og stjórnarform. Hótel Loftleiðir, Reykjavik 15.-16. september.
    Dagskrá ráðstefnunnar. Stutt frétt.
  • Ráðstefna um fullorðinsfræðslu - Hnattrænn menntamarkaður - norræn tækifæri
    Hótel Loftleiðir, Reykjavík 23.-24. september. Sjá fréttatilkynningu.
  • Ráðstefna um framtíð félagslegrar húsnæðisstefnu
    Skipulagt af Borgarfræðasetri og haldin í Svartsengi 8. október.
    Sjá lýsingu á ráðstefnunni og dagskrá.
  • Örugg matvæli - rekjanleiki, heilnæmi, hollusta
    Ráðstefna haldin í samstarfi þriggja embættismannanefnda. Um samræmdar aðgerðir til að tryggja hagsmuni neytenda. Nordica Hótel Reykjavík 14.-15. október.
  • Ungt fólk og lýðræði
    Ráðstefna um hvernig virkja megi atorku ungs fólks í lýðræðissamfélagi og þátttöku þess í ákvörðunum. Hótel Selfoss 21.-22. október 2004. Fjallað var um ráðstefnuna í Mbl. laugardaginn 23. október.
  • Rætur
    Ráðstefna um hvernig nýta megi fornbókmenntirnar sem aflvaka nútímamenningar.
    Reykjavík Nordica Hótel 18.-19. nóvember 2004. Frekari upplýsingar og skráning.
    Sjá frétt. og fréttatilkynningu.
  • Norrænar barna- og unglingabókmenntir - Nordmål Forum
    Ráðstefna á vegum norræna málaráðsins í samvinnu við norrænu stjórnarnefndina um barna- og unglingamenningu (BUK) Reykjavík 19. nóvember 2004. Sjá dagskrá og skráningu.
  • Ráðstefna um þróun landbúnaðarsamstarfs á Vestur-Norðurlöndum
 



Stoðval