Sterkari stoðum skotið undir svæðasamstarf við N-Atlantshaf

5.11.2004

Norrænir ráðherrar byggðamála ákváðu á fundi sínum í Stokkhólmi í dag að efla starfsemi Norður-Atlantshafsnefndarinnar NORA þannig að hún geti einnig náð til grannsvæða Norðurlanda í vestri.
NORA hefur aðsetur í Þórshöfn í Færeyjum. Meginverkefni frá stofnun 1996 hefur verið að efla tengslanet atvinnufyrirtækja á Vestur-Norðurlöndum og í Noregi með áherslu á samgöngur, ferðaþjónunstu og fiskvinnslu. Framvegis mun starfsemin einnig geta náð til Skotlands, skosku eyjanna og strandhéraða Kanada.

Ákvörðun byggðamálaráðherranna felur í sér að skotið verður sterkari stoðum undir starfsemi NORA sem er ein af 9 samstarfsnefndum á norrænum fjárlögum.

Með alþjóðavæðingunni hefur þörfin fyrir sameiginlegar lausnir aukist og verkefni sem miða að þekkingarmiðlun og samstarfi yfir landamæri eins og verkefni NORA, hafa aukið samkeppnishæfni, verðmætasköpun og árangur. Stjórn NORA verður falið að ákveða faglegar áherslur og móta stefnu fyrir samstarfsverkefni.

Sú ákvörðun að efla starfsemi NORA er í samræmi við stefnu Íslendinga í norrænu samstarfi, þar sem megináhersla hefur verið lögð á að styrkja svæðasamstarf í vestri. Þessi ákvörðun byggir einnig á nýju mati á starfsemi NORA og skýrslu Norrænu ráðherranefndarinnar Vestur-Norðurlönd í norrænu samstarfi frá 2003.
Á árinu var líka gerð úttekt á flug- og skipasamgöngum á Vestur-Norðurlöndum og er markmiðið að hún nýtist sem grundvöllur fyrir úrbætur sem gætu stuðlað að uppbyggingu í ferðaþjónustu og atvinnulífi. Úttektin verður kynnt á Norðurlandaráðsþinginu í Stokkhólmi. Einnig er stefnt að því að efla samstarf Vestur-Norðurlanda í rannsóknum á notkun endurnýjanlegrar orku og mun starfshópur sem kannað hefur leiðir til þess skila áliti í lok ársins.

Þá má geta þess að í nýgerðum starfsáætlunum Norrænu húsanna í Reykjavík og Þórshöfn, sem taka gildi um næstu áramót, er það gert að að forgangsefni að efla vestnorrænt samstarf. Stjórn Norræna hússins í Reykjavík hefur lagt til við systurstofnanirnar í Nuuk og í Þórshöfn að Vestur-Norðurlönd verði í sviðsljósi viðburða á vegum húsanna á árinu 2006.



 



Stoðval