Örugg og heilnæm matvæli
Dagana 14. og 15. október verður haldinn ráðstefna um Örugg og heilnæm matvæli á Hótel Nordica í Reykjavík undir yfirskriftinni SAFE AND WHOLESOME FOOD - Nordic reflections. Ráðstefnan er haldin af íslensku matvælaráðuneytunum í samstarfi við Norrænu ráðherranefndina.
Tekist hefur að fá nokkra af virtustu sérfræðingum heims til þess að fjalla um þessi mikilvægu mál og koma þeir frá alþjóðlegum stofnunum s.s. EFSA, WTO, OECD, WHO, FAO, EFTA, o.fl.
Umhverfisráðherra, Sigríður Anna Þórðardóttir, slítur ráðstefnunni með ávarpi um hádegisbil föstudaginn 15. október. Fulltrúum fjölmiðla er hér boðið að fylgjast með ráðstefnunni.
Nánari upplýsingar er að finna á heimasíðu ráðstefnunnar.

