Betri hagnýting norrænna auðlinda

11.11.2003

Davíð Oddsson forsætisráðherra lagði í dag fyrir þing Norðurlandaráðs verkefnaáætlun Íslendinga í Norrænu ráðherranefndinni, en þeir taka við formennsku í henni um áramót. Áætlunin hefur yfirskriftina Auðlindir Norðurlanda - Lýðræði, menning, náttúra og miðar að því að virkja og nýta betur þann auð sem býr í fólki , náttúru og norrænni lýðræðishefð.

Meginstefnumál Íslendinga fyrir árið 2004 er að vestnorræna svæðasamstarfið fái aukið vægi í norrænu samstarfi. Einnig er lagt til að Norræna ráðherranefndin leiti eftir samstarfi við grannsvæði Vestur-Norðurlanda við Norður-Atlantshaf: austurfylki Kanada, Skotland, skosku eyjarnar og Írland. Þar vega þau rök þyngst að allar þjóðir við Norður-Atlantshaf bera sameiginlega ábyrgð á auðlindum hafsins og verða að vinna saman að því að því vernda vistkerfi þess.

Loftslagsbreytingar á Norðurskautssvæðinu og áhrif þeirra á lífríki og orkubúskap verða einnig í brennidepli og verður á vordögum efnt til norrænnar ráðstefnu um hvernig bregðast megi við. Íslendingar setja líka á oddinn að samræma upplýsingar um sjálfbæra nýtingu sjávarauðlinda, efnainnihald í sjávarfangi og rekjanleika sjávarafurða. Á árinu verður hrint úr vör metnaðarfullu verkefni sem felur í sér að settur verður saman norrænn gagnabanki um sérstöðu hafsvæða og tegunda.

Í áætlun Íslendinga er lögð rík áhersla á að varðveita þau miklu víðerni ósnortinnar náttúru sem eru á Norðurlöndum og að þau verði nýtt á sjálfbæran hátt. Meðal annars er lagt til að kannað verði hvaða þýðingu þjóðgarðar og friðlýst svæði hafa fyrir afkomu, útivist og almennt heilbrigði.

Íslendingar setja líka á oddinn að efla norrænar rannsóknir á vetni og ætla að beita sér fyrir því að auka notkun á endurnýjanlegri orku, sérstaklega í Færeyjum og á Grænlandi.

Á menningarsviði setja Íslendingar fram nokkur meginmarkmið svo sem að framleiða meira af stafrænu menningarefni og þeir leggja til að stofnaður verði norrænn margmiðlunarsjóður í þeim tilgangi. Einng vilja þeir gera fornbókmenntirnar að aflvaka nútíma listsköpunar og nýta betur atorku æskufólks í grasrótarsamstarfi með listamönnum.

Niðurstöðum svokallaðrar hvítbókar um Norðurlönd sem framúrskarandi svæði fyrir rannsóknir og nýsköpun verður fylgt eftir af krafti á formennskutímanum og leitast verður við að byggja traustrar brýr milli vísindasamfélagsins og atvinnulífs.

Annað sem Íslendingar ætla að taka fyrir á norrænum vettvangi er framtíð lýðræðisins í ljósi hnattvæðingar og upplýsingatækni. Sett verður á laggirnar nefnd með fulltrúum norrænu ríkisstjórnanna til að kanna hvernig bæta megi aðgengi og aðkomu almennings að upplýsingum og ákvörðunum. Þá mun Poul Schlüter fyrrverandi forsætisráðherra Dana starfa áfram í umboði Íslendinga við að ryðja úr vegi hindrunum á norrænum landamærum.

Formennskuáætlun Íslendinga hefur verið gefin út á íslensku og dönsku.

 



Stoðval