Norrænir fjármálaráðherrar vilja hækka áfengisskatta

Sameiginleg norræn vefgátt um skattamál

18. maí 2004

Norðurlönd ætla að beita sér fyrir því að lágmarksskattar á áfengi verði hækkaðir
í Evrópusambandinu og vinna gegn rýmri innflutningsreglum á áfengi.
Þetta var ákveðið á fundi norrænna fjármálaráðherra í Keflavík í gær.
Svíar hafa áhyggjur af áformum í ESB um frjálsari áfengisverslun,
því lækkun áfengisskatts hefur þegar leitt til aukinnar áfengisneyslu í Svíþjóð
og Finnlandi.

Þá ákváðu ráðherrarnir að beita sér gegn tillögu framkvæmdastjórnar ESB sem gerði
fólki kleift að kaupa áfengi á Netinu og fá það sent heim til sín án þess að greiða
af því skatta.
Geir H. Haarde fjármálaráðherra benti á að álögur á áfengi hefðu ekki áhrif á
áfengisskatt í Noregi og á Íslandi, sem stæðu utan við sambandið. Þó væri staðan önnur
í Noregi þar sem fólk gæti farið yfir til Svíþjóðar til að kaupa áfengi.

Aðgerðir til að draga úr stjórnsýsluhindrunum á norrænum landamærum var annað
mikilvægt umfjöllunarefni á fundi ráðherranna. Poul Schlüter fyrrverandi forsætisráðherra
Danmerkur gerði grein fyrir vinnu sinni, en hann einbeitir sér nú að því
að draga úr hömlum á starfsemi norrænna fyrirtækja. Markmiðið er að styrkja
samkeppnisstöðu Norðurlanda í Evrópu.

Ráðherrarnir samþykktu að setja á laggirnar sameiginlega norræna vefgátt
um skattamál. Hún verður starfrækt í samstarfi við norrænu upplýsingaþjónustuna
Halló Norðurlönd og hýst hér á landi.



 



Stoðval