Formennskuáætlun
Náttúrugæði á Norðurlöndum eru mikil hvort heldur er í óspilltri og fjölbreyttri náttúru eða í nýtanlegum auðlindum. Þjóðskipulag hvílir á traustum lýðræðisgrunni, lýðræðið er virkt, félagsleg auðlegð er mikil, þjóðfélagsumræðan er frjó og starfsemi frjálsra félagasamtaka stendur með blóma. Stjórnsýsla á Norðurlöndum er opin og gegnsæ og almennt njóta stofnanir samfélagsins trausts. Norrænu ríkin hafa farið svipaðar leiðir til að tryggja góða menntun, vísindastarfsemi, hagnýtingu tækni, heilbrigðisþjónustu og félagslegt öryggi og hefur það skipað þeim í fremstu röð þjóða. Sterk samkennd frændþjóðanna er til vitnis um ríka og fjölbreytta menningararfleifð sem þær eiga sameiginlega. Samstarf og sambúð þeirra er góð og sama gildir um samskipti við grannþjóðirnar. Norrænu ríkin eru, þó með mismunandi hætti sé, virkir þátttakendur í alþjóðlegu samstarfi og samtökum sem hafa mótandi áhrif á þróunina á Norðurlöndum og grannsvæðum þeirra. Auðlindir Norðurlanda eru því margþættar og saman mynda þær undirstöður velferðarinnar. Þær skýra sterka stöðu Norðurlanda í samfélagi þjóða. Nýta þarf hinar fjölbreyttu auðlindir til fullnustu, styrkja þannig velferðina og tryggja framsókn landanna á alþjóðavettvangi.
Á formennskutímanum ætla Íslendingar að varpa fram nokkrum mikilvægum spurningum til umræðu á norrænum vettvangi:
- Verður lýðræðið nægilega virkt á næstu áratugum í heimi upplýsingatækni og hnattvæðingar?
- Hvernig eigum við að bregðast við ógnum sem steðja að lífríki á norðurslóð?
- Verndum við nógu vel auðlegð ósnortinnar náttúru Norðurlanda?
- Er atorka æskunnar vannýtt?
- Er vannýttur auður í Norðurlandabúum af erlendum uppruna?
- Er vannýttur mannauður í dreifðum byggðum Norðurlanda?
- Hvernig má styrkja nýsköpun og þekkingariðnað til að efla útrás Norðurlanda í hnattvæddum viðskiptaheimi.
- Eigum við vannýttan auð í norrænum menningararfi og listum?
- Nýtum við sem skyldi norræna samstarfshefð, hvort heldur er á norrænum vettvangi eða í starfi alþjóðastofnana?
- Má nýta betur tækifæri sem felast í samstarfi við Eystrasaltsríkin og önnur grannsvæði í austri?
- Nýtum við til fulls möguleika á samstarfi við grannsvæði við Norður-Atlantshaf?

