Örugg matvæli

Matarkistur lands og sjávar eru gjöfular en um leið viðkvæmar náttúruauðlindir sem umgangast ber með gát. Því þarf að tryggja sjálfbæra nýtingu þeirra, stemma stigu við hvers konar mengun og efla hreinlæti við úrvinnslu og eftirlit á efnainnihaldi afurða.

Á formennskutíma Íslendinga verður fylgt eftir áætlunum og ákvörðunum ráðherranefndarinnar um matvæli. Þar ber hæst Framkvæmdaáætlun um norrænt samstarf um matvæli til ársins 2004 og Ráðherrayfirlýsingu um aukið matvælaöryggi á Norðurlöndum eða svokallaða Grænlandsyfirlýsingu frá 2002.

Íslendingar ætla að leggja áherslu á fræðslu fyrir neytendur um öryggi matvæla, þ.m.t. neysluvatns og leiðir til að sporna gegn mengun. Stefnt er að fræðsluátaki í efri bekkjum grunnskólanna og verður sérstaklega reynt að efla almennan skilning á því hversu mikilvæg auðlind neysluvatnið er.

Fylgt verður eftir ályktun matvælaráðherranna frá 2003 um að efla skuli samstarf þriggja embættismannanefnda sem starfa að matvælamálum. Þannig verður á árinu reynt að samstilla eins og kostur er aðgerðir til að tryggja hagsmuni neytenda og matvælaframleiðenda. Í þessu skyni verður haldin sameiginleg ráðstefna undir yfirskriftinni Örugg matvæli - rekjanleiki, heilnæmi, hollusta.

Heilnæmar sjávarafurðir
Til að hafa um alla framtíð hámarksafrakstur af auðlindum hafsins þarf að nýta þær á hagkvæman hátt. Það markmið næst einungis með því að tryggja sjálfbærar fiskveiðar, sporna gegn mengun og halda á lofti hollustu og heilnæmi sjávarafurða. Íslendingar munu beita sér fyrir aðgerðum til að tryggja heilnæmi sjávarafurða og miðla upplýsingum um slíkt til neytenda. Á því sviði munu Íslendingar taka upp merki fyrri formennskuþjóða. Má þar nefna aðgerðir Svía til að koma í veg fyrir mengun í sjávarfangi af völdum PCB og annarra þrávirkra efna.

Íslendingar setja á oddinn að samræma upplýsingar um sjálfbæra nýtingu sjávarauðlinda, efnainnihald í sjávarfangi og merkingu og rekjanleika sjávarafurða. Þær mætti varðveita í samræmdum gagnabanka þar sem leita mætti upplýsinga um sérstöðu ólíkra hafsvæða og tegunda. Slíkt verkefni kallar á mikla vinnu og samstarf heima og heiman. Íslendingar ætla að nota formennskuárið til að ýta þessu stóra verkefni úr vör.

 



Stoðval