Vetni og endurnýjanlegar orkulindir

Á síðustu árum hefur norrænt samstarf í orkumálum beinst að þremur kjarnasviðum: opnun raforkumarkaðar, loftslagsvanda og samvinnu við Eystrasaltsríkin. Einnig hefur verið unnið að verkefnum sem miða að meiri orkunýtni og nýtingu endurnýjanlegra orkulinda á jaðarsvæðum. Þar hefur Norræna orkurannsóknastofnunin gegnt veigamiklu hlutverki. Betri orkunýting fellur einkar vel að helstu stefnumiðum Íslendinga. Óvíða eru jafn miklar orkuauðlindir og á Norðurlöndum og þar eru menn jafnframt í fararbroddi við að nýta endurnýjanlegar orkulindir. Þá búa Norðurlandabúar yfir mikilli reynslu og sérþekkingu á sviði orkumála.

Norðurlönd eiga einstakt samstarf um að opna raforkumarkaðinn og eru fyrirmynd annarra um hvernig koma megi á sameiginlegum frjálsum orkumarkaði. Öll norrænu ríkin hafa staðfest Kyotobókunina og sýnt vilja til þess að hrinda úr vör samstarfsverkefnum til að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda við Eystrasalt. Samstarf við Eystrasaltsríkin og Norðvestur-Rússland hefur beinst að því að styrkja raforkumarkað þeirra og auka notkun á endurnýjanlegum orkugjöfum.

Íslendingar leggja áherslu á að haldið verði áfram á þeirri braut sem mörkuð hefur verið á kjarnasviðunum þremur. Þeir vilja leita leiða til að auka hlut endurnýjanlegrar orku á Vestur-Norðurlöndum, sérstaklega í Færeyjum og á Grænlandi, sem eru háð olíunotkun við húshitun og raforkuframleiðslu. Mikilvægt er að gera áætlun um orkunotkun svæða og byggðarlaga og kanna kosti þess að nota vindorku og varmadælur til húshitunar. Þá verður lögð áhersla á auka orkunýtni brennslueldsneytis.

Það er stefna Íslendinga að Norðurlönd verði í fararbroddi í rannsóknum á vetni og vetnissamböndum. Nauðsynlegt er að styrkja rannsóknarsamstarf og kanna hvort og þá á hvern hátt vetni geti aukið notkun á endurnýjanlegri orku á norðvesturbyggðum Norðurlanda. Íslendingar vilja jafnframt efla rannsóknir á áhrifum loftslagsbreytinga á orkubúskap. Vatnsorkulindir Norðurlanda eru viðkvæmar fyrir hitabreytingum sem spáð hefur verið á næstu árum og því er nauðsynlegt að vaka vel yfir þessari auðlegð.

 



Stoðval