Verndun hafsins
Norræna umhverfisáætlunin sem gildir til loka árs 2004 er sá grunnur sem samstarfið um umhverfisvernd byggir á. Mikilvægt verkefni Íslendinga á formennskutímanum verður að undirbúa nýja umhverfisáætlun.
Veiðar eru langt í frá það eina sem hefur áhrif á lifandi auðlindir hafsins. Umhverfisþættir og óbein áhrif af athöfnum mannsins ráða þar líka miklu. Loftslagsbreytingar á norðurskautssvæðinu verða í brennidepli á árinu með tilliti til áhrifa þeirra á lífríki hafsins.
Íslendingar ætla að leggja til að umhverfis- og sjávarútvegsgeirinn taki höndum saman og skipuleggi ráðstefnu þar sem fjallað verður um hvernig vernda megi lífríki hafsins. Ráðstefnan verður haldin í júníbyrjun 2004.

