Samgöngur og sjálfbær ferðaþjónusta

Íslendingar leggja megináherslu á öryggismál í samgöngum. Í samræmi við tillögur í skýrslunni Vestur-Norðurlönd í norrænu samstarfi verður einnig unnið að því að efla samgöngur í útnorðri.
Í því samhengi verður gerð úttekt á samgöngum milli Vestur-Norðurlanda með það fyrir augum að setja fram tillögur um úrbætur. Unnið verður að því að móta stefnu fyrir menningartengda ferðaþjónustu og lögð áhersla á frekari vinnu við stefnumörkun og aðgerðaráætlun í sjálfbærri ferðaþjónustu á norðurskautssvæðum. Þá verður leitast við að tryggja aðgengi fyrir hreyfihamlaða ferðamenn og gera Norðurlönd að ákjósanlegum áfangastað fyrir þá.

Norðaustursiglingaleiðin
Alþjóðleg samtök, stofnanir og fyrirtæki hafa kannað möguleikana á að opna nýja flutningaleið frá landluktum héruðum Mið-Asíu og tengja hana við flutningaleið Norður-Evrópu til Bandaríkjanna. Við það myndi flutningaleið á milli Ameríku og Mið-Asíu styttast verulega. Mikill ávinningur yrði af slíkri samgöngubót. Íslendingar munu beita sér fyrir því að Norðurlönd leggi þessu verkefni lið.

 



Stoðval