Náttúra
Norðurlönd hafa þá sérstöðu að þar eru meiri víðerni ósnortinnar náttúru en víðast hvar í Evrópu. Þau eru mikil auðlegð sem augu manna hafa verið að opnast fyrir, enda jafnan ógerlegt eða mjög kostnaðarsamt að endurheimta náttúru sem hefur verið spillt. Rík áhersla verður lögð á að vernda þessi auðæfi og nýta á sjálfbæran hátt. Kannað verður hvaða þýðingu þjóðgarðar og friðlýst svæði hafa fyrir afkomu, útivist og almennt heilbrigði. Einnig er brýnt að skoða hvernig samræma megi náttúruvernd og nýtingu náttúruauðlinda.
Íslendingar ætla að að boða til ráðstefnu um þessi mál á haustmánuðum 2004. Áhersla verður lögð á þátttöku frjálsra félagasamtaka til að tryggja lýðræðislega umræðu.Þetta er rökrétt framhald af ráðstefnu sem haldin var að frumkvæði Svía 2003 um skóginn á Norðurlöndum. Meginmarkmið er að efla áhuga frjálsra félagasamtaka á norrænu samstarfi og skapa farveg fyrir samræður þeirra sín á milli og við stjórnvöld.
Íslendingar leggja jafnframt ríkt á um að norrænni áætlun um sjálfbæra þróun verði fylgt eftir og að hún taki til fleiri þátta. Unnið er að nýrri og endurskoðaðri áætlun fyrir tímabilið 2005-2010 á því að taka gildi þegar formennskutíma Íslendinga lýkur.

