Menning
Íslendingar munu halda fram þeirri skoðun að nýta beri í miklu ríkara mæli þann styrk sem Norðurlönd búa yfir og felst í mannauði, sameiginlegum menningararfi og gildismati, svo og öflugu mennta-, vísinda- og nýsköpunarkerfi. Margt bendir til þess að Norðurlönd hafi hingað til vannýtt þessa auðlind til að hasla sér völl á alþjóðlegum vettvangi. Íslendingar leggja því áherslu á að nýta sem best innri og ytri styrk Norðurlanda til að efla samkeppnisstöðu á sviði menningar, mennta og vísinda. Lykilorðin eru annars vegar samlegð (synergi) og hins vegar hnattræn útrás. Með öflugra rannsóknarsamstarfi þarf að samþætta og samræma þekkingarauðinn í löndunum, en jafnframt stefna að útbreiðslu norrænna menningar-, mennta- og vísindaafurða.
Íslendingar vilja auka samstarf við ríki utan Norðurlanda, sérstaklega grannsvæðin við Norður-Atlantshaf. Fylgt verður eftir tillögum og ábendingum á sviði menningar-, mennta- og vísinda í skýrslunni Vestur-Norðurlönd í norrænu samstarfi. Íslendingar munu jafnframt fylgja eftir samstarfi Norðurlanda við Eystrasaltsríkin og Norðvestur-Rússland, meðal annars með sameiginlegum ráðherrafundi um menntamál og vísindi sem haldinn verður fyrri hluta árs 2004.

