Svæðasamstarf við Norður-Atlantshaf

Ein birtingarmynd norrænu samstarfshefðarinnar er svæðasamstarf Norðurlanda. Það hefur að sönnu skilað árangri með betri auðlindanýtingu og auknum lífsgæðum. Þannig hafa Svíar og Finnar haft augljósan hag af því að rækta svæðasamstarf sín á milli og á Eyrarsundssvæðinu eiga Danir og Svíar gott samstarf um að leysa sameiginleg verkefni. Á sama hátt hafa norrænu ríkin í Norður-Atlantshafinu ótvíræðan hag af því að snúa bökum saman í mörgum hagsmunamálum. Íslendingar leggja því mikla áherslu á að vestnorræna svæðasamstarfið fái meira vægi, einkum vegna þess að hagsmunir Norður-Atlantshafssvæðisins afmarkast ekki við Vestur-Norðurlönd heldur fara þeir saman við heildarhagsmuni Norðurlanda.

Grannsvæðasamstarf – nýjar víddir
Þeirri skoðun hefur vaxið fylgi innan Norrænu ráðherranefndarinnar að tímabært sé að beina sjónum að næstu grönnum Vestur-Norðurlanda við Norður-Atlantshaf.

Íslendingar telja brýnt að ráðherranefndin hefjist handa við að móta stefnu um samstarf við grannsvæðin þannig að hún taki einnig til strandsvæði Norðurlanda í vestri þ.e. í Atlantshafshéruð Kanada, Nunavut og Nunavik, Skotland, skosku eyjarnar, Írland og Norður-Írland. Það er nátengt þeirri sýn að efla beri vestnorrænt svæðasamstarf á öllum sviðum. Þau rök vega þyngst að allar þjóðir við Norður-Atlantshaf bera sameiginlega ábyrgð á sjávarauðlindum og nýtingu þeirra og verða því að vinna saman að því að vernda vistkerfi hafsins.

Á árinu 2003 var lögð fram í ráðherranefndinni skýrslan Vestur-Norðurlönd í norrænu samstarfi. Starfshópur gerði skýrsluna að beiðni norrænu samstarfsráðherranna og þeir samþykktu hana á fundi sínum í júní sama ár. Skýrslan nær til fjölmargra samstarfssviða ráðherranefndarinnar. Í henni eru beinar tillögur og hugmyndir að verkefnum, hvort heldur er í vestnorræna svæðasamstarfinu eða í samstarfi við grannsvæði Vestur-Norðurlanda. Óskað hefur verið eftir því að fagráðherranefndir geri grein fyrir því hvernig þær ætli að fylgja skýrslunni eftir. Íslendingar ætla á formennskuárinu að knýja á um að áform fagráðherranefnda komi tafarlítið til framkvæmda.

 



Stoðval