Engar hindranir á norrænum landamærum

Í norrænu samstarfi hefur það verið forgangsmál frá upphafi að stuðla að því að fólk eigi þess greiðan kost að fara á milli landanna til starfa, náms og skemmri dvalar og njóta eftir því sem kostur er sama réttar og heimamenn. Þetta er markmið margra norrænna milliríkjasamninga um réttindi borgaranna. Þó er enn víða pottur brotinn. Átak hefur því verið gert til að afnema landamærahindranir eftir að skýrslurnar Norðurlönd umleikin vindum veraldar (2000) og Réttindi Norðurlandabúa (2001) voru gefnar út.

Íslendingar munu fylgja eftir þeirri stefnu að ryðja úr vegi hindrunum á norrænum landamærum. Til að ná því markmiði hefur Poul Schlüter fyrrverandi forsætisráðherra Dana verið falið að halda áfram á árinu 2004 að knýja á um samræmdar aðgerðir ráðherranefnda.

 



Stoðval