Lagasamstarf
Byggja þarf á þeirri hefð sem er fyrir samráði við lagasetningu í norrænu samstarfi til að innleiða ESB/EES-gerðir og samræma sem mest löggjöf á Norðurlöndum. Það er forsenda þess að norræn velferðarþjóðfélög verði áfram samstillt þó löndin hafi valið ólíkar leiðir að sama marki. Eins er mikilvægt fyrir atvinnulífið að samræmi sé á sviði löggjafar svo að öflugur norrænn heimamarkaður geti dafnað.
Samstarf norrænu dómsmálaráðuneytanna endurspeglar sameiginlegt gildismat og réttarvitund. Slíkt umhverfi skapar frjóan jarðveg fyrir réttarbætur. Markmiðið er að Norðurlandabúar njóti áfram góðs af samstarfinu með því að lög séu samræmd að því marki sem unnt er.
Áfram verður lögð rík áhersla á að samræma lög á sviði sifjaréttar og erfðaréttar.
Í samstarfi norrænu dómsmálaráðherranna verður baráttan gegn hryðjuverkum og mansali einnig í fyrirrúmi. Þá mun gaumur verða gefinn að alþjóðlegri þróun á sviði réttarfars og refsiréttar með það að markmiði að tryggja og auka áhrif norrænnar lagahefðar.
Stjórnsýslan á Norðurlöndum og norrænn stjórnsýsluréttur verður í auknum mæli fyrir áhrifum frá Evrópuréttinum. Í ljósi þess er nauðsynlegt að ræða hvort ástæða sé til að efla samstarf Norðurlanda á þessu sviði. Leitast verður við að skilgreina hvort í norrænum stjórnsýslurétti felist kostir sem vert er að halda í og standa vörð um.

