Lýðræði fyrir alla
Athygli verður beint að æskufólki með það að leiðarljósi að stuðla að virku lýðræði í framtíðinni. Miklu skiptir að sú kynslóð sem er að vaxa úr grasi sé skipuð ábyrgum og sjálfstæðum einstaklingum sem þekkja leikreglur lýðræðisins á öllum sviðum. Því leggja Íslendingar áherslu á að málefni barna og ungmenna verði áfram í fyrirrúmi í norrænu samstarfi. Markmið framkvæmdaáætlunar um norrænt barna- og æskulýðssamstarf, Norðurlönd inn í nýtt árþúsund, falla vel að stefnumiðum Íslendinga, meðal annars að leggja áherslu á að æskufólk sé virkt og hafi áhrif í eigin málum. Íslendingar vilja fylgja eftir starfi sem hófst í formennskutíð Norðmanna og miðaði að því að efla þátttöku ungs fólks í lýðræðissamfélagi og lýðræðislegum ákvörðunum.
Efnt verður til ráðstefnu um hlutverk æskufólks í virku lýðræði.
Aðlögun og virk þátttaka innflytjenda
Ein forsenda þess að lýðræðið sé virkt er að allir samfélagshópar eigi þess kost að hafa raunveruleg áhrif í þjóðfélaginu. Innflytjendur á Norðurlöndum, með rætur í annarri menningu, eiga oft á hættu að einangrast, og á það ekki síst við um konur. Íslendingar ætla að taka við boðkeflinu úr höndum Svía og vinna að aðlögun og virkri þátttöku innflytjenda í samfélaginu, enda hefur það mikla þýðingu að nýta hæfileika þeirra, þekkingu og menningarauð.

