Náttúra

Aðgerðir

  • Áhersla verður lögð á að vernda ósnortna náttúru og nýta hana á sjálfbæran hátt.
  • Efnt verður til ráðstefnu á haustdögum um þýðingu þjóðgarða og friðlýstra svæða fyrir afkomu, útivist og heilbrigði.
  • Ný norræn umhverfisáætlun er forgangsverkefni.
  • Haldin verður alþjóðleg ráðstefna um hvernig vernda megi lífríki hafsins dagana. Reykjavík 2.- 4. júní 2004.
    Sjá vefsíðu um ráðstefnuna; Ocean Strategies - Integrated Management of Marine Environment.
  • Efla skal rannsóknir á vetni og finna leiðir til að nýta betur endurnýjanlegar orkulindir.
  • Unnið verður að því að auka notkun endurnýjanlegrar orku á Vestur-Norðurlöndum, sérstaklega í Færeyjum og á Grænlandi.
  • Styrkja þarf rannsóknir á áhrifum loftslagsbreytinga á orkubúskap Norðurlanda.
  • Unnið verður að því að móta stefnu fyrir menningartengda ferðaþjónustu á Norðurlöndum og fyrir sjálfbæra ferðaþjónustu á norðurskautssvæðum.
  • Gert verður átak í fræðslu um örugg matvæli og haldin norræn ráðstefna undir yfirskriftinni Örugg matvæli, rekjanleiki, heilnæmi og hollusta. Okóber 2004.
  • Stuðlað verður að aðgerðum til að tryggja heilnæmi og hollustu sjávarafurða og miðla upplýsingum um það til neytenda.
  • Hrint verður úr vör viðamiklu verkefni sem miðar að því að koma upp fjölþjóðlegum gagnabanka um fiskstofna, sérstöðu hafsvæða og merkingar á sjávarfangi.
  • Haldin verður ráðstefna um þróun landbúnaðarsamstarfs á Vestur-Norðurlöndum.
  • Lögð verður áhersla á verkefni sem lúta að breyttri landnýtingu svo sem skógrækt, einkum áhrifum hennar á vistkerfi, félagslegt umhverfi og þróun í dreifðum byggðum.
 



Stoðval