Menning

Aðgerðir

  • Fylgt verður eftir tillögum og ábendingum á sviði menningar-, mennta og vísinda sem settar voru fram í skýrslunni Vestur-Norðurlönd í norrænu samstarfi.
  • Haldinn verður sameiginlegur ráðherrafundur Norðurlanda, Eystrasaltsríkja og Norður-Rússlands um samstarf á sviði mennta og vísinda. Fundurinn verður í Kaupmannahöfn í mars. Sjá frétt um fundinn.
  • Efnt verður til ráðstefnu um auðsuppsprettuna í norrænum fornbókmenntum.
  • Stefnt er að því að halda málþing um útrás norrænnar menningar.
  • Skoðaður verður sá kostur að stofna norrænan margmiðlunarsjóð til að efla framleiðslu á stafrænu menningarefni.
  • Lífsleikni verður lykilorð á þemaráðstefnunni Menntun og mannauður - lifandi skólasamfélag til framtíðar.
  • Áhersla verður lögð á að fylgja eftir tillögum hvítbókar um Norðurlönd sem framúrskarandi svæði fyrir rannsóknir og nýsköpun. Efnt verður til alþjóðlegrar ráðstefnu þann 10. júní 2004. til að ræða niðurstöður hvítbókarinnar.
  • Unnið verður að því að byggja brýr milli vísindasamfélagsins og þeirra sem vinna að nýsköpun í atvinnulífinu.
  • Kannað verði hvernig fella megi fullorðinsfræðslu og dreifmenntun inn í byggðaáætlanir á Norðurlöndum svo virkja megi betur mannauð í dreifðum byggðum.
  • Lagt er til að framtíðarsýn í málefnum aldraðra verði rædd á norrænum vettvangi.
  • Leitað verður nýrra leiða í atvinnumálum fatlaðra og hrint úr vör tilraunaverkefni um starfsmannaskipti á vernduðum vinnustöðum á Norðurlöndum.
  • Gerð verður norræn könnun á árangri meðferðar sem í boði er fyrir unga vímuefnaneytendur.
  • Háskólum á jaðarsvæðum verður falið að rannsaka þýðingu fjarnáms og fjarlækninga fyrir byggðaþróun.
  • Haldin verða málþing um félagslegan þátt húsnæðismála og árangur af borgarstefnu.
  • Leitað verður leiða til að auka atvinnumöguleika kvenna og ungs fólks í dreifbýli.
  • Lagt er til að gerð verði samanburðarrannsókn á reynslu foreldra af fæðingarorlofi á Norðurlöndum.
  • Staða eldri launþega á vinnumarkaði verður könnuð. Sjá skýrslu gerða af danska ráðgjafafyrirtækinu PLS Ramb¢ll.
  • Samin verður ný norræn samstarfsáætlun á sviði vinnumála og vinnuverndar.
  • Haldin verða tvö málþing um málefni neytenda. Annars vegar um neysluvenjur ungs fólks dagana 30. - 31. ágúst 2004 og hins vegar um neytendavernd dagana 8. - 9. nóvember 2004.
  • Efnt verður til samkeppni um besta norræna fræðsluefnið fyrir neytendur.
 



Stoðval