Áætlun sviða
Hvert ráðuneyti gerir verkefnaáætlun fyrir formennskutímann á sínu samstarfssviði. Íslenski fagráðherrann er jafnframt í forystu fagráðherranefnda á formennskutímanum. Norrænu ráðherrarnir funda nokkrum sinnum á ári - sjá yfirlit yfir ráðherrafundi.
19 embættismannanefndir eru ráðherrum til aðstoðar og undirbúa ákvarðanir. Embættismannanefndirnar vinna jafnframt að stefnumálum á hverju fagsviði og hittast reglulega. Bæklingar um einstök svið hafa verið gefnir út, svo sem um menningar- og menntamál, vísindi og rannsóknir, samgöngumál og neytendamál.

