Áætlun fyrir vinnumarkaðsmál og vinnuvernd
Í samræmi við meginstef Íslands á formennskuárinu - Auðlindir Norðurlanda - verður lögð áhersla á samspil milli stefnu í menntun og þjálfun og stefnu í vinnumálum. Í þessu samhengi er gagnkvæm viðurkenning á starfsréttindum á Norðurlöndum afar þýðingarmikil og verður lögð áhersla á að hrinda í framkvæmd samstarfsverkefni um það.
Ísland hefur hug á að nýta niðurstöður úr verkefninu "Góðar fyrirmyndir fyrir þjónustu vinnumiðlunar á svæðum með einhæft atvinnulíf". Á grundvelli þeirra verða kennslumöguleikar kannaðir og rannsakað hvaða áhrif vinnumiðlun hefur á slíkum svæðum.
Eldri starfsmenn sem hafa öðlast reynslu í starfi og starfsþjálfun er auðlegð sem ekki hefur verið nýtt sem skyldi. Ísland vill beita sér fyrir því á formennskutímanum að kannað verði með hvaða hætti koma megi í veg fyrir að fólk sé látið gjalda aldurs á vinnustað.
Ísland mun einnig beita sér fyrir endurskoðun á samstarfsáætlun Norðurlandanna á sviði vinnumála og vinnuverndarmála og undirbúa nýja áætlun sem tekur til áranna 2005-2008. Þá verður stuðlað að meira samráði til að bæta heilsuvernd og öryggi starfsmanna við stórframkvæmdir.
Áfram verður unnið að því að gera úttekt á reglum sem hindra frjálsa för yfir noræna landamæri og hugað að atvinnu og félagslegum réttindum borgarra þriðju ríkja með löglega búsetu.

