Upplýsingatækni
Áætlun fyrir upplýsingatækni 2004
Í alþjóðlegum könnunum kemur skýrt fram hversu sterk staða Norðurlandanna er í þróun upplýsingasamfélagsins.
Styrkur landanna felst í mannauðnum, almennu tölvulæsi, góðu aðgengi að tölvum og Netinu og faglegri notkun upplýsingatækni í opinberri þjónustu og fyrirtækjarekstri. Þennan styrk eiga Norðurlönd að líta á sem auðlind sem hægt er að nýta til að ná árangri á mörgum ólíkum sviðum samfélagsins.
Lýðræðishefðin er ein helsta auðlind og aflvaki Norðurlanda en samfélagsþróunin er ör; tækni, samskipti og þjónustuleiðir breytast hratt og margar spurningar vakna varðandi stöðu og framtíð lýðræðisins í því samhengi.
Ísland leggur til að starf ráðherranefndar um upplýsingatækni (MR-IT) taki annars vegar mið af Stefnuyfirlýsingu og aðgerðaráætlun ráðherranefndarinnar fyrir árin 2002-2004 en hins vegar verði unnið útfrá þemanu: Auðlindir Norðurlanda – Upplýsingatæknin og lýðræðið.
Eftirtalin fimm áhersluatriði verða því sem fyrr meginviðfangsefni ráðherranefndarinnar:
- Þekkingarsamfélag fyrir alla
- Tölfræðilegir mælikvarðar
- Rafræn stjórnsýsla
- Breiðband og stafrænt efnisframboð
- Öryggi og traust í upplýsingatækni og fjarskiptum.
Ráðherranefndin beini athyglinni að stöðu og eflingu lýðræðisins í tengslum við ofangreind áhersluatriði og leiti m.a. svara við spurningunum:
- Verður lýðræðið nægilega virkt á næstu áratugum í heimi upplýsingatækni og hnattvæðingar?
- Hvaða áhrif hefur upplýsinga- og fjarskiptatækni á lýðræðið?
- Hvernig er hægt að nýta tæknina til að styrkja lýðræðið?
Ísland leggur til að ráðherranefnd um upplýsingatækni starfi með Lýðræðisnefndinni sem skipuð verður af samstarfsráðherrum Norðurlandanna. Ráðherranefndin (MR-IT) einbeiti sér að þeim þætti sem snýr að upplýsingatækninni og lýðræðinu.
Stefnt er að því að halda á árinu ráðstefnu um lýðræðisþróun í upplýsingasamfélagi sem ráðherranefndin um upplýsingatækni mun standa fyrir. Ráðstefnan verði haldin í samstarfi við Lýðræðisnefndina og verður í tengslum við fund upplýsingatækniráðherra. Fyrirhugað er að Lýðræðisnefndin kynni þar hugmyndir sínar og tillögur sem yrðu eitt af aðalefnum ráðstefnunnar.

