Áætlun ráðherranefndar um fiskveiðar, landbúnað og skógrækt og matvæli

Íslendingar munu á formennskuárinu beita sér fyrir aukinni fræðslu og upplýsingagjöf til neytenda um innihald og uppruna matvæla. Þar verður litið til fæðukeðjunnar í heild eða allt frá hafi eða haga til maga. Sérstök áhersla verður lögð á mikilvægi neysluvatns bæði til neyslu og ekki síður við matvælaframleiðslu. Þá verður litið til breyttrar matvælaneyslu í samfélaginu þar sem hefðbundin neysla matvæla virðist vera á undanhaldi en duft og pillur leika orðið stórt hlutverk í neyslumynstri margra þjóðfélagshópa. Þá færist í vöxt framleiðsla á markfæði (functional foods) sem ætlað er að hafa bein áhrif á þætti í heilsufari fólks. Þessar breytingar kalla á virkara eftirlit með þessum vörum og samstillt norræn samvinna á þessu sviði er líkleg til að vera vegvísir málaflokksins á alþjóðavettvangi.

Þá verður lögð áhersla á að framleiða myndefni um almennt hreinlæti í matvælaframleiðslu til að nota við kennslu og á námskeiðum.

 



Stoðval