Áætlun ráðherranefndar um fiskveiðar, landbúnað og skógrækt og matvæli
Miklar breytingar hafa orðið í landbúnaði á síðustu áratugum. Minna land en áður þarf til þess að framleiða matvæli og er landið því falt til annarra nota. Bættar samgöngur og aukin fjarskipti hafa breytt búsetuskilyrðunum og opnað ný tækifæri til búsetu og starfa fjarri þéttbýlinu.
Þróun landbúnaðarins og búseta í dreifðum byggðum byggir þó enn sem fyrr að miklu leyti á nýtingu erfðaauðlinda. Mikil áhersla verður því lögð á að halda áfram verkefnum sem lúta að varðveislu og kynbótum á hefðbundnum erfðaauðlindum í búfé og nytjaplöntum. Þar verður aukin áhersla lögð á rannsóknir á eiginleikum gamalla búfjárstofna til þess að kanna hvort hagnýting þeirra í nútímanum geti skapað sérstöðu þegar mæta þarf þeim breytingum sem leiða af aukinni alþjóðavæðingu í verslun með landbúnaðarafurðir.
Skógrækt
Temaverkefni Íslands innan landbúnaðarins á formennskuárinu er Skóglíf - áhrif nýskógræktar á vistkerfi, félagslegt umhverfi og byggð. Ísland hefur um aldir verið nær skóglaust land. Nú er hins vegar hafið umfangsmikið átak til að rækta skóga og er ljóst að það mun breyta ásýnd landsins og búsetuskilyrðum á komandi áratugum. Sama er upp á tengingnum í Færeyjum og jafnvel Danmörku og Vestur-Noregi en þar voru skógar mjög eyddir í byrjun fyrri aldar. Norðurlönd eru ákjósanlegt svæði til rannsókna á þessu sviði. Í fyrsta lagi eru Ísland og Færeyjar þar sem áhrif skóga á vistkerfi og mannlíf eru óveruleg, þá Danmörk og Vestur Noregur þar sem nokkuð er um skóga sem hafa efnahagsleg og félagsleg áhrif og að síðustu austurhluti Noregs, Svíþjóðar og Finnlands þar sem skógur er þéttur og ein af stoðum efnahagslífsins. .
Samhliða þessu verkefni mun Ísland leitast við að fylgja eftir frumkvæði Noregs um að móta stefnu um norrænt menningarlandslag sem verðmæti á alþjóðavettvangi. Í því efni eru Norðurlöndin einmitt ákjósanlegur vettvangur rannsókna með alþjóðlegri skírskotun. Íslendingar vilja og fylgja eftir frumkvæði Svía á formennskuári þeirra um að skilgreina nýtt hlutverk bóndans í samfélaginu og fjölbreytileika landbúnaðarins.

