Áætlun um samstarf á sviði jafnréttismála

Áætlun Norrænu ráðherranefndarinnar fyrir árin 2001 til 2005

Norræn framtíðarsýn í jafnréttismálum er samfélag jafnréttis. Í samstarfsáætlun fyrir árin 2001 til 2005 er þetta markmið sett fram í þremur liðum:
· Kynja og jafnréttissjónarmið í norrænni efnahagspólitík
(Ett köns och jåmstelldhetsperspektiv i nordisk ekonomisk politik)
· Karlar og jafnrétti (Män och jämställdhet)
· Vernd gegn ofbeldi (Kvinnofrid)

Einnig er talið brýnt að tryggja jafnrétti kynja í efnahags- og stjórnmálum, jafnan rétt kynja í atvinnulífinu, að fjalla um æskuna og jafnrétti kynja og halda til haga jafnréttissjónarmiðum þegar mótuð er stefna í málefnum innflytjenda. Unnið er að fjölmörgum verkefnum í samræmi við þessa áætlun. Norræn verkefni um aðgerðir gegn kynbundnum launamun og kynjaðri hagstjórn eru að komast á framkvæmdastig og ennfremur er unnið að sameiginlegum aðgerðum gegn mansali og að verkefnum á vegum norrænu karlanefndarinnar.

Áherslur Íslands á árinu 2004
Auðlegð Norðurlanda felst ekki síst í mannauðnum. Þar skiptir máli að allir einstaklingar, óháð kynferði,  eigi jafnan möguleika á að njóta eigin atorku og séu metnir að verðleikum. Ísland leggur því áherslu á að komast til botns í því hvað valdi viðvarandi launamun kynja. Þrátt fyrir ýmsar aðgerðir er enn fyrir hendi óútskýrður launamunur. Unnið verður að því að draga úr honum og lögð rík áhersla á samstarf innan Norðurlandaráðs um jafnréttismál og vinnumarkaðsmál.
Til að ná fram jafnrétti á vinnumarkaði er nauðsynlegt að bæði kynin fái notið sín á sem flestum starfssviðum. Það hefur löngum verið reynt að fá konur til að hasla sér völl á vettvangi karla, en minni áhersla verið lögð á að karlar fái tækifæri til að gegna umönnunar- og uppeldistörfum. Ísland leggur áherslu á að jafnréttismálin verði skoðuð frá þessum sjónarhóli. Sjá málþing um kynskiptan vinnumarkað.

Mannauðurinn varðveitist best með því að tryggja að drengir og stúlkur, konur og karlar, fái notið sín til fulls á heimili, í skóla og á vinnumarkaði. Foreldra- og fæðingarorlof opnar feðrum leið til að sinna börnum sínum og heimili. Kannað verður hvernig feður og mæður nýta sér rétt til foreldra- og fæðingarorlofs, áhugi foreldra á slíku orlofi og meginhindranir fyrir því að þau nýti sér það. Ísland stefnir ennfremur að því að gera könnun á reynslu íslenskra foreldra af fæðingarorlofi í samræmi við ný lög, einkum reynslu feðra. 

Á árinu 2004 verða 30 ár liðin frá því að stofnuð var norræn ráðherranefnd um jafnréttismál. Ísland ætlar að minnast þess með sérstökum hætti, m.a. með því að líta til baka yfir áratuginn 1974 – 2004 og sjá hvað hefur áunnist og hvað hefði betur mátt fara. Sjá dagskrá málþings sem haldið var af þessu tilefni.

Ísland mun enn fremur fylgja heils hugar eftir þeim norrænu verkefnum sem þegar eru komin til framkvæmda á sviði jafnréttismála.

 



Stoðval