Áætlun ráðherranefndar um fiskveiðar, landbúnað og skógrækt og matvæli

Matarkistur lands og sjávar eru gjöfular en um leið viðkvæmar náttúruauðlindir sem umgangast ber með sérstakri gát. Því þarf, auk þess að tryggja sjálfbæra nýtingu þeirra, að stemma stigu við hvers konar mengun og efla hreinlæti við úrvinnslu og eftirlit með matvælum. Með vísan til þessa mun megin áherslan í starfi Íslendinga innan ráðherranefndarinnar um fiskveiðar, landbúnað og skógrækt og matvæla á formennskuárinu verða örugg matvæli og sjálfbæra nýtingu auðlinda lands og sjávar.

Ísland mun með starfi sínu í samræmingarhóp embættismannanefndanna þriggja; fyrir fiskveiðar (NEF), landbúnað og skógrækt (NEJS) og matvæla (EK-Livs) beita sér fyrir enn nánara samstarfi þeirra í samræmi við ályktun ráðherrafundarins í Kalmar og leitast við að móta samræmda heildarsýn í starfi þeirra. Íslendingar munu fylgja eftir niðurstöðum hvítbókarinnar um Norðurlönd sem framúrskarandi svæði fyrir rannsóknir og nýsköpun. Þar ber hæst tillögur um að tengja sem best saman háskóla, rannsóknastofnanir og sjóði sem styðja rannsóknir, tækniþróun og nýsköpun. Á formennskutíma Íslendinga verður og fylgt eftir áætlunum og ákvörðunum ráðherranefndarinnar um fiskveiðar, landbúnað og skógrækt og matvæla. Þar ber hæst Framkvæmdaáætlun um norrænt samstarf um matvæli til ársins 2004 og Ráðherrayfirlýsingu um aukið matvælaöryggi á Norðurlöndum eða svokallaða Grænlandsyfirlýsingu frá 2002.

Íslendingar leggja einnig ríka áherslu á að efla samstarf Norðurlanda og grannsvæðanna við Eystrasalt og Norður-Atlantshaf. Þannig telja Íslendingar brýnt að ráðherranefndin hefjist handa við að breyta stefnumótun um samstarf við grannsvæðin þannig að hún taki einnig til strandsvæða vestan og sunnan Vestur-Norðurlanda. Það er nátengt þeirri sýn að efla beri vestnorrænt svæðasamstarf á öllum sviðum. Þau rök vega þyngst að allar þjóðir við Norður-Atlantshaf bera sameiginlega ábyrgð á sjávarauðlindum og nýtingu þeirra og verða því að vinna saman að því að vernda vistkerfi hafsins.

Til að auðnist að hafa um alla framtíð hámarksafrakstur af auðlindum hafsins þarf að tryggja hagkvæma og sjálfbæra nýtingu sjávarauðlindanna, sporna gegn mengun hafsins og halda á lofti hollustu og heilnæmi sjávarafurða. Íslendingar munu beita sér fyrir aðgerðum til að tryggja heilnæmi sjávarafurða og miðla upplýsingum um slíkt til neytenda. Þar munu Íslendingar taka upp merki fyrri formennskuþjóða. Má þar nefna aðgerðir Svía til að koma í veg fyrir mengun í sjávarfangi af völdum PCB og annarra þrávirkra efna.

Gagnagrunnur um hafsvæði og tegundir
Íslendingar setja á oddinn að samræma upplýsingar um sjálfbæra nýtingu sjávarauðlinda, efnainnihald í sjávarfangi og merkingu og rekjanleika sjávarafurða. Þær mætti varðveita í samræmdum gagnabanka þar sem leita mætti gagna um einkenni ólíkra hafsvæða og tegunda. Slíkt verkefni kallar á mikla vinnu og samstarf innanlands og utan. Íslendingar horfa til þessa verkefnis sem höfuðviðfangsefnis síns á sviði sjávarútvegsins á formennskutímanum og munu nota hann til að ýta þessu stóra verkefni myndarlega úr vör.

 



Stoðval