Áætlun um neytendamál

Í meira en áratug hefur verið unnið að því á norrænum vettvangi að opna markað á öllum sviðum viðskiptalífs. Stutt hefur verið við frjálsa samkeppni og neytendur hvattir til að veita aðhald á markaði. Viðskipti yfir norræn landamæri hafa aukist og jafnframt vöxtur fyrirtækja sem starfa á tveimur eða fleiri landsmörkuðum á Norðurlöndunum. Til að mæta þörfum neytenda og tryggja gæði og öryggi í viðskiptum hafa stjórnvöld hvatt seljendur á vörum og þjónustu til að setja hagsmuni neytandans í öndvegi og axla þá ábyrgð sem fylgir frjálsum og opnum markaði.
Ísland vill leggja áherslu á að þróa og bæta skipulegt samráð neytenda og atvinnulífs t.d .með því að stofna samstarfsráð í hverju ríki og á norrænum vettvangi. Skilvirk upplýsingamiðlun og skipuleg úrlausn á ágreiningi í viðskiptum eru mikilvæg tæki til að tryggja öryggi neytenda í viðskiptum. Réttaröryggi neytenda er því liður í að tryggja réttlæti í lýðræðisþjóðfélögum á 21. öld. Með hliðsjón af lýðræðishefð Norðurlanda og reynslu á sviði neytendamála vill Ísland að skoðað verði hvernig  Norðurlönd geti skarað fram úr á þessu sviði. 

Mannauðurinn og norrænir neytendur
Beinir þátttakendur í norrænu samstarfi á sviði neytendamála skipta hundruðum og þeir  búa yfir mikilli þekkingu. Tengslanet þeirra og uppsöfnuð þekking er auðlegð sem virkja þarf til fullnustu. Tölvueign og tölvunotkun er jafnframt hvergi meiri en á Norðurlöndunum. Lagt er til að hugað verði að því hvernig virkja megi þennan sameiginlega mannauð og þá þekkingu sem í honum býr við undirbúning nýrrar stefnu fyrir neytendamálasviðið á árinu 2004. Ísland telur nauðsynlegt að hraða smíði á öflugu vefsvæði fyrir hið norræna neytendasamstarf sbr. áætlanir Norrænu ráðherranefndarinnar um að koma upp rafrænu fundartorgi (d.nordisk e-mödesplads).

Þekkingaröflun og norrænt rannsóknanet
Neytendarannsóknir stuðla að betri þekkingu á högum og aðstæðum neytenda og eru forsenda póltískrar stefnumótunar. Þróun og uppbygging á norræna rannsóknanetinu hefur leitt til meiri og markvissari samvinnu norrænna rannsóknaraðila. Ísland telur mikilvægt að þróa áfram norræna rannsóknarnetið, kynna það og virkja markvisst í þágu norrænnar neytendastefnu. Nota má þá samanlögðu þekkingu sem býr í samstarfsnetinu sem grunn fyrir pólitískar ákvarðanir í þeim tilvikum þar sem að rannsóknir liggja fyrir og geta komið að gagni.

Áhersluatriði
Ísland telur að á grundvelli sterkrar lýðræðishefðar og hins þétta norræna tengslanets á sviði neytendamála sé unnt að vinna að margvíslegum verkefnum sem miða að því að nýta betur sameiginlegar auðlindir.   Á formennskutímanum verður sjónum beint að eftirtöldum verkefnum:

  • Rannsakað verður hvaða upplýsingar norrænir neytendur og atvinnulíf þurfa til að markaðurinn starfi rétt og eðlilega.
  • Hafinn verði undirbúningur að því að setja saman norrænan gagnagrunn um málefni neytenda. Safnað verði upplýsingum með það að markmiði að auka ánægju og öryggi neytenda í viðskiptum.
  • Skoðað verði hvernig koma megi neytendaupplýsingum á framfæri með áhugaverðum hætti.
  • Hagir neytenda á Vestur Norðurlöndum verða skoðaðir í sérstökum verkefnum svo sem samstarf landanna og uppbygging neytendmála í þessum ríkjum.
  • Efnt verður til samkeppni á Norðurlöndum um besta fræðsluefnið fyrir neytendur. Viðurkenning verði veitt í fyrsta sinn á Norðurlandaráðsþingi á Íslandi árið 2005.
  • Haldið verður norrænt málþing um neytendavernd með hliðsjón af nýjum aðferðum við setningu laga um málefni neytenda og þær breytingar sem eru að verða á því hvernig ábyrgð skiptist á milli þess opinbera og einkaaðila. Einnig verði skoðað hvort ennþá sé til samnorrænt líkan á sviði neytendaverndar? 
  • Haldið verður málþing um lífsstíl ungs fólks sem byggir neyslu á lántökum. Skoðaðir verða neyslustaðlar fyrir ungt fólk og aðstoð vegna greiðsluerfiðleika norrænna heimila. Áfram verður stuðlað að samstarfi við Eistland, Lettland og Litháen á sviði neytendamála.
  • Mikilvægt er að Norðurlöndin miðli af auðlegð sinni og þrói samstarf við grannsvæðin í Norðvestur-Rússlandi með verkefnum á sviði neytendamála.
 



Stoðval