Áætlun um samstarf á sviði húsnæðis- og byggingarmála
Samstarfsáætlun í húsnæðis- og byggingarmálum fyrir tímabilið 2002 – 2005 tilgreinir þrjú megin samstarfssvið: Félagsleg húsnæðismál, sjálfbæra þróun húsnæðis-og byggingargeira og borgarstefnu. Verkefni og viðfangsefni hafa tekið mið af félagslegum þætti húsnæðismála og mun áfram verða unnið á þeim forsendum. Verkefni studd af embættismannanefndinni hafa að leiðarljósi að efla þekkingargrunn, bera saman þróun landanna og ekki síst að miðla reynslu af aðgerðum opinberra aðila.
Ísland mun halda áfram verkefnum sem stofnað var til undir formennsku Svía og miða að því lækka byggingar- og húsnæðiskostnað m.a. með því að afnema hindranir, annars vegar innbyrðis milli landanna í viðskiptum með byggingarvörur og byggingarstarfsemi og hins vegar milli Norðurlandanna og Eystrasaltsríkjanna, sbr. skýrsluna Norden och Baltikum. En gemensam marknad för byggande och förvaltning av bostäder. Markmiðið er að koma á sameiginlegum markaði fyrir byggingarstarfsemi og rekstur íbúða. Áfram verður leitað leiða til að lækka byggingarkostnað og stuðla að öflugri samkeppni á þessu sviði.
Á formennskuári Íslands er lögð rík áhersla á samstarf við Vestur-Norðurlönd og grannsvæði þeirra, Skotland, Írland og ákveðin svæði í Kanada. Leitast verður við að hrinda í framkvæmd verkefnum sem bent er á í skýrslunni Vestur-Norðurlönd í norrænu samstarfi og snúa að húsnæðis- og byggingarmálum.
Jafnvægi byggðasvæða
Lögð verður áhersla á að vinna að verkefnum þar sem fjallað er um jafnvægi byggðasvæða, neikvæðar afleiðingar fólksfækkunar fyrir húsnæðismarkað og þróun þéttbýlissvæða. Ráðstefna um þessa þróun var haldin á Íslandi í ágúst árið 2003. Viðfangsefni ráðstefnunnar eru til úrvinnslu og er stefnt að þverfaglegu samstarfi við embættismannanefnd um byggðastefnu, Norrænu miðstöðina um rannsóknir og þróun í byggðamálum (Nordregio) og fulltrúa frá Vestur –Norðurlöndum.
Félagsleg húsnæðisstefna
Undir formennsku Íslands verða félagslegar íbúðir og félagsleg húsnæðisstefna til umfjöllunar sem tæki til að aðstoða þá sem eiga erfitt uppdráttar á húsnæðismarkaði, til að tryggja öryggi ungra fjölskyldna og aldraðra í húsnæðismálum, fyrirbyggja aðskilnað í íbúðahverfum og stuðla að sjálfbærri þróun í húsnæðis- og byggingarmálum. Félagsleg húsnæðisstefna verður skoðuð sem stoðkerfi velferðarkerfisins og tæki til að ná fram markmiðum stjórnvalda. Á vegum Íslands hefur verið unnið að rannsóknarverkefni undir heitinu Allmännyttiga och sociala bostäders framtid i Norden. Skýrslan verður til umfjöllunar á ráðstefnu á Íslandi 2004 um framtíð félagslegrar húsnæðisstefnu. Þar verður m.a. fjallað um stoðkerfi og stjórntæki húsnæðiskerfisins,íbúalýðræði, verkaskiptingu ríkis, sveitarfélaga, félagasamtaka og markaðar.
Sjálfbær þróun
Á vettvangi samstarfsráðherra er verið að skoða framvindu stefnumörkunar um sjálfbæra þróun. Í því sambandi hafa augu manna meðal annars beinst að húsnæðis- og byggingargeiranum. Ljóst er að fjárfestingar í byggingargeiranum eru til langframa. Reiknað er með að meira en 90% af hinu byggða umhverfi (byggingar, götur, veitur) muni enn standa að einni kynslóð liðinni. Það er því forgangsverkefni að skoða hvernig nýta megi þessa auðlegð á sjálfbærari hátt en gert er í dag. Sinna þarf samverkan þeirra stjórntækja sem stuðla að sjálfbærri þróun, til dæmis þeim er snerta rekstur húsnæðis en einnig að huga að breyttu lífsmunstri íbúa, samgönguháttum í þéttbýli o.fl. Til þess þarf aukinn þekkingargrunn og fræðslustarfsemi. Stefnt verði að því að undirbúa verkefni er snúa að þessum þætti húsnæðis- og byggingarmála.
Borgarstefna
Um árabil hafa málefni byggðasvæða verið ofarlega á baugi í norrænu samstarfi á sviði húsnæðis- og byggingarmála. Á allra síðustu árum hefur mönnum orðið betur ljóst að borgir og önnur þéttbýlissvæði gegna lykilhlutverki í byggðaþróun og að góð leið til að efla byggðasvæði sé að styrkja þróun þéttbýlis og borga á ákveðnum svæðum. Undir forystu Dana hefur verið unnið að forverkefni um reynslu af borgarstefnu á Norðurlöndunum og er verið að skrifa rannsóknarskýrslu sem kynnt verður á ráðstefnu í Danmörku á árinu.

