Áætlun um atvinnumál
Nýsköpun í norrænu atvinnulífi
Yfirlýst markmið er að styrkja samkeppnishæfni atvinnulífsins og ryðja úr vegi sem flestum hindrunum fyrir því að Norðurlönd verði sameiginlegur heimamarkaður.
Íslendingar munu setja þessi markmið á oddinn. Hluti af því verður að greina mismun sem enn er á starfsskilyrðum norrænna fyrirtækja og hamlar þróun þeirra og samkeppnishæfni. Þá verður lagt mat á hvernig afnema megi þessar hindranir og efla streymi þekkingar og fjármagns á milli landanna.
Leitað verður leiða til þess að minnka bilið á milli vísindarannsókna og nýsköpunar í atvinnulífinu. Niðurstöður hvítbókar um Norðurlönd sem framúrskarandi svæði fyrir rannsóknir og nýsköpunverða innlegg í þá umfjöllun. Samkeppnisstaða landanna og efnahagsframfarir byggja að verulegu leyti á því að sem best samfella sé á milli þessara tveggja mikilvægu þátta.
Íslendingar vilja leggja sitt af mörkum til þess að skapa meiri skilning á þessu og að áfangi náist í að efla samstarf þeirra sem stunda vísindarannsóknir og þeirra sem vinna að nýsköpun í atvinnulífinu. Mikilvæg forsenda þess er samstarf ráðherranefndar mennta og vísinda við ráðherranefnd atvinnumála.
Áhersla verður lögð á að auka samstarf við og milli norrænna stofnana sem hafa á dagskrá að bæta norrænt og alþjóðlegt umhverfi atvinnulífsins. Þá verður unnið að því að skapa tengsl milli þeirra og nýrrar stofnunar, Norrænu nýsköpunarmiðstöðina sem tekur til starfa í byrjun árs 2004 á grunni Norræna iðnaðarsjóðsins og Norrænu prófunarstofunnar.
Íslendingar telja að nýja stofnunin geti gegnt lykilhlutverki, einkum við að efla samstarf um rannsóknir, tækniþróun og nýsköpun, en einnig til að afnema hindranir fyrir viðskiptalegum framförum. Lögð verður áhersla á að stofnunin fái góða kynningu á sínu fyrsta starfsári og að hún verði viðurkennd sem burðarás í nýsköpun og efnahagsþróun á Norðurlöndum.
Á grundvelli skýrslunnar Vestur-Norðurlönd í norrænu samstarfi verður leitað leiða til að styrkja atvinnulíf og efnahagsþróun í Færeyjum og á Grænlandi. Lögð verður áhersla á á rannsóknir og nýsköpun í atvinnulífinu og að mynduð verði tengslanet fyrir lítil og meðalstór fyrirtæki.

