Formennska íslands 2004

Formennska_Forsida Norrænu ríkin skiptast á um að fara með formennsku í Norrænu ráðherranefndinni og leiða starfsemina eitt ár í senn. Á árinu 2004 kemur það í hlut Íslendinga að gegna formennsku í nefndinni. Þeir hafa mótað stefnu fyrir samstarfið á formennskutímanum undir fyrirsögninni Auðlindir Norðurlanda. Með auðlindum er átt við samfélagsgerðina, félagslegar aðstæður, menningararfinn og náttúruauðlindir.

Leiðarstefin eru þrjú; lýðræði, menning og náttúra. Þau verða ekki skilin hvert frá öðru, enda þjóðfélag og menning mannanna verk og skynsamleg nýting náttúruauðlinda ógerleg án hugvits og þekkingar.

Norræna ráðherranefndin hefur frumkvæði að fjölmörgum málum svo sem þeim sem greint er frá í formennskuáætluninni og lögð verða fram í Norðurlandaráði. Þá ber ráðherranefndin ábyrgð á norrænum rannsóknarverkefnum, 30 norrænum stofnunum, starfsemi norrænu upplýsingaskrifstofanna, alþjóðlegum samningum og sáttmálum.

Ísland fer næst með formennsku í Norrænu ráðherranefndinni árið 2009.

 

Nýtt

19.11.2004 : Málfar í norrænum barna- og unglingabókum

Ráðstefna Hótel Loftleiðum föstudaginn 19. nóvember. Lesa meira
 

16.11.2004 : Rætur - stefnumót við norræna menningu

Ráðstefna á Nordica hóteli 18.-19. nóvember 2004 Lesa meira
 

10.11.2004 : Karlar í kvennastörfum - kynskiptur vinnumarkaður

Norræn ráðstefna á Grand hóteli 11-12.nóvember 2004 Lesa meira
 

9.11.2004 : Eru stjórnmálaflokkar og stjórnmálamenn í kreppu? Málþing í HÍ 12. nóv. 2004

Málþing um stöðu lýðræðis á Norðurlöndum í Odda HÍ föstudaginn 12. nóvember 2004. Lesa meira
 





Stoðval